Timeout hægindastóll
Gæði og þjónusta fyrir fyrirtæki, fagfólk og endursöluaðila

GER Heildverslun

GER Heildverslun var stofnuð árið 2010 og hóf starfsemi sína með áherslu á vandaðar dýnur, rúm, kodda og aðrar vörur fyrir hótel og spítala. Með árunum hefur úrvalið vaxið jafnt og þétt og í dag býður GER Heildverslun upp á fjölbreytt og vandað vöruúrval frá traustum og þekktum birgjum víðs vegar að úr heiminum.

GER Heildverslun er í eigu GER verslana, sem einnig reka Húsgagnahöllina, Betra bak og Dorma. Þetta tryggir gríðarlegt úrval og lausnir sem henta jafnt hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum og fyrirtækjum af öllum stærðum. Auk þess seljum við vörur til endursöluaðila.

Lögð er rík áhersla á vandað val á vörumerkjum og gæði vöru, enda er það okkar helsta markmið að bjóða upp á áreiðanlegar og endingargóðar lausnir. Jafnframt leggjum við mikla áherslu á persónulega og faglega þjónustu þar sem þörfum viðskiptavina er mætt af alúð.

Skráðu fyrirtækið þitt hjá okkur og fáðu betri kjör, sérsniðna þjónustu og lausnir sem henta þínum rekstri, hvort sem hann er stór eða smár.